Þegar þú hefur gengið frá kaupum með Pei færðu sjálfkrafa 14 daga greiðslufrest. Innan þessara 14 daga getur þú farið á Mínar síður eða í appið, og frestað eða dreift greiðslunum.
- Hægt er að velja milli þessa að fresta greiðslu í 30 eða 60 daga
- Hægt er að dreifa upphæð að 1.000.000 kr. á allt að 36 mánuði
- Hægt er að dreifa upphæð frá 1.000.000 til 2.000.000 kr. á allt að 48 mánuði standist þú lánareglur Pei
Ekki bíða of lengi með að fresta greiðslu, þar sem í einstaka tilvikum er um færri daga en 14 að ræða.
Þú sækir Pei appið í App Store eða Google Store.
Verðskráin gildir frá 11. febrúar 2025
Fresta í 14 daga
- Fyrir upphæð lægri en 3.000 kr. er 99 kr. greiðslugjald
- Fyrir upphæð á bilinu 3.001-20.000 kr. er 199 kr. greiðslugjald
- Fyrir upphæð hærri en 20.001 kr. er 299 kr. greiðslugjald
- Vextir eru 0%
- Lántökugjald er 0%
Fresta í 30 daga
30 daga frestur er í boði fyrir upphæðir frá 3.000 kr.
- Fyrir upphæð á bilinu 3.000-10.000 kr. er 199 kr. greiðslugjald
- Fyrir upphæð hærri en 10.001 kr. er 399 kr.
- Vextir eru 0%
- Lántökugjald er 2,95%
Fresta í 60 daga
60 daga frestur er í boði fyrir upphæðir frá 3.000 kr.
- Fyrir upphæð á bilinu 3.000 – 9.999 kr. er 199 kr. greiðslugjald
- Fyrir upphæð 10.000 kr. og hærri er 399 kr. greiðslugjald
- Vextir eru 0%
- Lántökugjald er 4,95%
Dreifa
Greiðsludreifing er í boði fyrir upphæðir frá 30.000 – 3.000.000 kr.
- Fyrir upphæð á bilinu 30.000-49.999 kr. er 99 kr. greiðslugjald
- Fyrir upphæð á bilinu 50.000-99.999.kr. er 199 kr.
- Fyrir upphæð hærri en 100.000 kr. er 349 kr.
- Ársvextir eru 18,10%
- Lántökugjald er 3,95%
- Afborgunargjald greiðsludreifingar er 549 kr.
* Vextir og lántökugjald kunna að vera önnur en verðskráin segir til um – aldrei hærra en mögulega lægra.
* Einstakir söluaðilar gætu verið með önnur verð en eru uppgefin
Í appinu
Þú sérð yfirlit yfir notkun þína á fyrstu opnunni í Pei appinu. Þú sækir appið í App Store eða Google Store.

Á Mínum síðum
Skráðu þig inn á mitt.pei.is með rafrænum skilríkjum. Á yfirlitssíðu sést yfirlit yfir færslur og heildarnotkun bæði hvað varðar veltu og fjölda kaupa.
- Kaup geta verið í mismunandi stöðum og er hver staða auðkennd með einföldum hætti

Þegar keypt er fyrir lægri upphæðir en 20.000 kr. í vefverslunum þarf ekkert að gera annað en að velja Pei sem greiðslumáta þegar þú ert að borga. Þá færðu sjálfkrafa 14 daga greiðslufrest og greiðsluseðill berst í heimabanka u.þ.b. fjórum dögum eftir kaup, 10 dögum fyrir eindaga. Viljir þú fresta eða dreifa greiðslum sækir þú appið eða skráir þig inn á þjónustuvefinn.
Fyrir hærri upphæðir þarftu einungis að sækja appið og skrá þig sem notanda.
Þú sækir Pei appið í App Store eða Google Store.
Í Pei appinu
Þú sérð heimildina (Til ráðstöfunnar) á forsíðu appsins með því að velja „Sýna“.

Þú sækir Pei appið í App Store eða Google Store.
Á Mínum síðum
Þú innskráir þig á Mínar síður með rafrænum skilríkjum. Efst á síðunni sérðu hvaða heimild þú ert með og stöðu notkunnar.

Í vefverslun
Þú einfaldlega velur Pei í greiðsluferlinu og færð sjálfkrafa 14 daga greiðslufrest.
Í verslun
Vertu með Pei appið og þú getur greitt með því á svipaðan hátt og með greiðslukorti í síma. Veldu Pei sem greiðsluleið við kassann og fáðu sjálfkrafa 14 daga greiðslufrest.
Hvort sem þú verslaðir á vefnum eða í verslun þá getur þú innan 14 daga frestsins farið í Pei appið eða á Mínar síður, og sótt um 30 eða 60 daga frest eða dreift greiðslunum í allt að 60 mánuði. Greiðsluseðill berst í heimabanka 10 dögum fyrir eindaga.
Með Pei getur þú keypt núna og borgað seinna. Þegar þú gengur frá kaupum færðu alltaf 14 daga greiðslufrest sem svo er hægt að lengja í 30 eða 60 daga eða dreifa greiðslunum í allt að 48 mánuði. Lágmarksupphæð dreifingar er 30.000 kr.
Í Pei appinu geturðu skoðað heimildina þína og fundið lista yfir alla 1.500 söluaðilana sem taka við Pei sem greiðslu. Þú finnur Pei appið í App Store eða Google Store og notar rafræn skilríki til að innskráningar.