
- Byrjið á að fara inn á sölugáttina og veljið Sala > Söluyfirlit sem er efst á síðunni hægra megin á síðunni.
- Hægt er að smella á örina sem er vinstra megin við færsluna til að sjá nánari upplýsingar.
- Vinstra megin við færslu birtast tvö tákn. Skiptilykill er notaður til að lækka upphæð færslu ef vara er ekki til eða viðskiptavinur skilar vöru. Vinsamlega athugið að ekki er hægt að hækka höfuðstól á færslu eftir á aðeins lækka. X-ið er notað til að fella færslu alveg niður. Þegar færsla er felld niður þarf að skrifa inn ástæðu niðurfellingar til að staðfesta.
Athugið að ekki er hægt að breyta færslu eða fella hana niður ef hún hefur þegar verið greidd út, eða ef viðskiptavinur hefur breytt færslunni með því að dreifa henni eða bæta við greiðslufresti.
Í sölugáttinni getur þú handskráð sölu ef viðskiptavinurinn er á staðnum hjá þér.

Söluupplýsingar
- Undir valmyndinni efst hægra megin á skjánum skal velja Sölur > Skrá nýja sölu.
- Fylltu út kennitölu greiðanda. Ef viðkomandi er þegar notandi að Pei, ættu nafn, netfang og farsími að birtast en að öðrum kosti þarfa að fylla út þær upplýsingar.
- Skráðu upplýsingar um söluna, vöruheiti, magn og einingaverð.
- Hægt er að skrá upplýsingar um fleiri en eina vöru með því að velja „Bæta við sölu“ hnappinn.
- Veldu svo hnappinn „Áfram í greiðslumáta“.

Greiðslumáti
- Hér er hægt að velja fjölda gjalddaga ef viðskiptavinur óskar eftir því. Ef greiðslan er skilin eftir í einum gjalddaga þá getur viðskiptavinurinn dreift kaupunum sjálfur í Pei appinu eða á Pei.is allt að 14 dögum eftir að viðskiptin eiga sér stað. Ekki er hægt að skipta greiðslum fyrir upphæðir undir 20.000 kr. Greiðsluáætlunin ætti að birtast neðar á síðunni.
- Það eru þrjár leiðir til að staðfesta kaupinn
a. Með PIN í gegnum SMS. Viðskiptavinur fær sent SMS í símann sinn með PIN númeri sem hann afhendir söluaðila til staðfestingar í viðmótinu.
b. Undirrita með rafrænni staðfestingu. Gætið að því að viðskiptavinurinn sé með símann ólæstan áður en þessi leið er valinn.
c. Kaupandi skrifar undir staðfestingu. Ef hinar tvær leiðirnar eru ekki í boði einhverra hluta vegna þá er hægt að prenta út lánasamninginn til undirritunnar. Gætið þess að haka við að viðkomandi hafi undirritað samningin og að geyma undirritaða eintakið.
- Þá ætti ekkert að vera eftir nema að velja hnappinn „Ganga frá sölu“. Bæði söluaðilinn og viðskiptavinur ættu að fá sendan tölvupóst með staðfestingu á að kaupin séu frágengin og söluaðili getur afhent viðskiptavin vöruna.
Express
Einnig er í boði að velja Express ferlið til að skrá sölu en það er einskonar flýtimeðferð. Sölur með Express eru eingreiðslur en viðskiptavinur getur dreift sjálfur eftir á í Pei appinu.

- Undir Sölur > Skrá sölu skaltu velja Express
- Þú skráir inn upplýsingar um söluna. Sjálfgefið vöruheiti er „Sala“ en hægt er að breyta því.
- Sláðu inn kennitölu viðkomandi eða einkvæman 12 stafa barkóða sem viðskiptavinur sýnir þér í Pei appinu. Ef viðskiptavinur er þegar notandi að Pei munu upplýsingar um viðkomandi fyllast út sjálfkrafa..
- Veldu „Staðfesta sölu“ og þá ætti viðkomandi að fá sms til að staðfesta söluna, eða ef barkóði var sleginn inn, staðfestist salan um leið.
Ef þú hefur áhuga á að bjóða Pei sem greiðsluleið í þinni verslun þá ekki hika við að senda fyrirspurn á okkur á pei@pei.is.
Einnig bendum við þér á að skoða https://pei.is/developer til að fá frekari upplýsingar um tengingar við vefverslunarkerfi og fleira.
Upphæð lægri en 3.000 kr.
- Áminning 1.178 kr.
- Fyrsta innheimtubréf 1.612 kr.
- Símtal 682 kr.
- Annað innheimtubréf 1.612 kr.
- Þriðja innheimtubréf 1.612 kr.
Upphæð á bilinu 3.000 kr. – 10.499 kr.
- Áminning 1.178 kr.
- Fyrsta innheimtubréf 2.604 kr.
- Símtal 682 kr.
- Annað innheimtubréf 2.604 kr.
- Þriðja innheimtubréf 2.604 kr.
Upphæð á bilinu 10.500 kr. – 84.999 kr.
- Áminning 1.178 kr.
- Fyrsta innheimtubréf 4.588 kr.
- Símtal 682 kr.
- Annað innheimtubréf 4.588 kr.
- Þriðja innheimtubréf 4.588 kr.
Upphæð hærri en 85.000 kr.
- Áminning 1.178 kr.
- Fyrsta innheimtubréf 7.316 kr.
- Símtal 682 kr.
- Annað innheimtubréf 7.316 kr.
- Þriðja innheimtubréf 7.316 kr.
Gildir frá 17. október 2019. Öll verð innifela virðisaukaskatt.
Ef þú lendir í vanskilum getur þú séð stöðu þeirra á Mínum síðum hjá Motus.
Félagið sem á og rekur Pei heitir Greiðslumiðlun og eru greiðsluseðlar sendir undir því nafni.
Öll vanskil fara í innheimtu hjá Motus. Innheimta er kostnaðarsöm og því hvetjum við þig til að forðast slíkt. Innheimtuferli Pei er eftirfarandi:
- Áminning er send 2 dögum eftir eindaga kröfu
- Innheimtubréf 1 er sent 12 dögum eftir eindaga
- Símtal
- Innheimtubréf 2 er sent 22 dögum eftir eindaga
- Innheimtubréf 3 er sent 32 dögum eftir eindaga
Kostnaður við innheimtu fer eftir upphæð kröfunnar. Sjá verðskrá Motus fyrir innheimtukostnað.
Ef þú lendir í vanskilum getur þú séð stöðu þeirra á Mínum síðum hjá Motus.
Greiðsluseðillinn berst í heimabankann 10 dögum fyrir eindaga. Þú getur dreift og frestað greiðslunni fram að eindaga í Pei appinu.
Þegar þú kaupir vöru með Pei færðu sjálfkrafa 14 daga greiðslufrest. Innan þessa 14 daga getur þú farið inná þjónustuvefinn eða appið og sótt um 30 eða 60 daga frest eða dreift greiðslunum í allt að 48 mánuði.
Ekki bíða of lengi með að fresta greiðslu, þar sem í einstaka tilvikum er um færri daga en 14 að ræða.
Þú getur fylgst með stöðunni þinni í Pei appinu sem má sækja í App Store eða Google Store.