Aðeins er greidd veltutengda þóknun af sölum og eru engin önnur gjöld sem bætast við. Þú færð uppgjör 14 dögum eftir sölu óháð því hvort greiðslu var frestað eða dreift.
Ef þú hefur áhuga á að bjóða Pei sem greiðsluleið í þinni verslun þá ekki hika við að senda fyrirspurn á okkur á pei@pei.is.
Pei gerir viðskiptavinum þínum kleift að borga eins og þeim hentar best. Fjórtán daga greiðslufrest er sjálgefinn en viðkomandi hefur einnig möguleika á að fresta greiðslu um 30 eða 60 daga, eða dreifa á allt að 48 mánuði. Hægt er að bjóða upp á Pei sem greiðslumáta á nokkra vegu:
- Í vefverslun
Þú getur tengt greiðslusíðuna okkar við vefversluna þína þar sem viðskiptavinur þinn getur gengið frá greiðslunni eins og viðkomandi hentar best.
- Í posa
Í boði eru snertilausar greiðslur með Pei appinu fyrir posa. Fljótlega og þægileg leið til að ganga frá greiðslu þar sem appið sér um að auðkenna viðskiptavininn.
- Senda greiðsluhlekk gegnum sölugátt Pei
Þú færð aðgang að sölugátt Pei sem er þjónustuvefur til að stofna greiðslur. Viðskiptavinurinn fær sms með link á greiðslusíðu og getur þar gengið frá greiðslunni eins og viðkomandi hentar best.
Ef þú hefur áhuga á að bjóða Pei sem greiðsluleið í þinni verslun þá ekki hika við að senda fyrirspurn á okkur á pei@pei.is.
Pei er þægileg lausn fyrir fyrirtæki til að taka við greiðslum, hvort sem er í vefverslun eða gegnum posa á staðnum. Bjóðum einnig tengingar við helstu afgreiðslukerfi.
Betri þjónusta við viðskiptavini þína
Pei er í notkun á yfir 1500 sölustöðum og um 40.000 einstaklingar sem notað það til að borga fyrir vörur og þjónustu. Pei er því góð leið til að stækka viðskiptamannahópinn.
Öryggi
Rafræn auðkenning tryggir öryggi kaupenda og seljenda gagnvart óprúttnum aðilum sem reyna að nálgast persónu- og greiðsluupplýsingar á netinu.
Engin áhætta
Pei kannar greiðsluhæfi þeirra sem óska eftir viðskiptum með greiðsluseðlum sem dregur úr líkum á vanskilum. Þú færð uppgjör 14 dögum eftir sölu óháð því hvort greiðslu var frestað eða dreift
Ef þú hefur áhuga á að bjóða Pei sem greiðsluleið í þinni verslun þá ekki hika við að senda fyrirspurn á okkur á pei@pei.is.
Að senda greiðsluhlekk er notað þegar viðskiptavinurinn er ekki á staðnum hjá þér. Þú skráir upplýsingar um söluna og tengill er sendur í sms’i á símanúmer viðkomandi sem getur þá gengið frá greiðslunni
- Veldu Sölur > Stofna greiðsluhlekk
- Fylltu út kennitölu greiðanda. Ef viðkomandi er þegar notandi að Pei, ættu nafn, netfang og farsími að birtast en að öðrum kosti þarfa að fylla út þær upplýsingar.
- Skrifaðu inn tilvísun
- Skráðu upplýsingar um söluna, vöruheiti, magn og einingaverð.
- Hægt er að skrá upplýsingar um fleiri en eina vöru með því að velja „Bæta við sölu“ hnappinn.
- Veldu hnappinn „Stofna hlekk“. Þá færðu möguleika á að senda greiðsluhlekkinn á viðskiptavininn í gegnum SMS, tölvupóst og/eða í gegnum Push Notification í Pei appið. Hægt er að haka við alla möguleika eða velja einn. Einnig birtist slóðin á hlekkinn neðst sem er hægt að afrita og senda í gegnum aðrar samskiptaleiðir eins og spjallforrit eða samfélagsmiðla.
Þú getur svo fylgst með hvort viðskiptavinir hafi gengið frá greiðslu inn á síðunni Söluyfirlit.
Já Pei býður upp á tengingar við fjölmörg sölukerfi, til dæmis Shopify og Woocommerce. Sjá lista yfir sölukerfi sem við bjóðum uppá.
Ef þú hefur áhuga á að bjóða Pei sem greiðsluleið í þinni verslun þá ekki hika við að senda fyrirspurn á okkur á pei@pei.is.
Ef þú ert yfirnotandi að Pei hjá þínu fyrirtæki þá getur þú stofnað notendur fyrir aðra sem starfa með þér. Ef þú þarft að loka notenda þá vinsamlega sendu beiðni þess efnis á pei@pei.is.
- Smelltu á notendanafnið þitt sem er efst í hægra horninu á skjánum
- Veldu Umsjón notenda úr fellivalmyndinni.
- Veldu Nýskrá notanda til að stofna aðgang fyrir aðila.
- Úr listanum yfir notendur getur þú valið að Breyta til uppfæra netfang, símanúmer eða breyta heimildum viðkomandi.
Inn á Sölugáttinni getur þú hlaðið inn merki fyrirtækisins þíns þannig að það sé sýnilegt á greiðslusíðunni þinni og á prófíl fyrirtækis þíns í Pei appinu.
- Veldu notandann þinn og þar undir Logó stillingar.
- Til hlaða inn mynd skaltu ýta á hnappinn „Velja mynd“. Mælst til þess að myndirnar séu á png skráarformati með transparent bakgrunn.
- Þegar búið er að hlaða inn myndunum ættu þær að birtast á greiðslusíðu og sömuleiðis í Pei appinu undir söluaðilar.
Það eru tvær leiðir til að skrá sölu í Sölugátt Pei:
1. Greiðsluhlekkur. Notað þegar viðskiptavinurinn er ekki á staðnum. Þú skráir upplýsingar um söluna og linkur er sendur á netfang eða símanúmer viðkomandi sem getur þá gengið frá greiðslunni.
2. Skrá sölu. Notað þegar viðskiptavinur er á staðnum hjá þér. Þú skráir upplýsingar um söluna og viðskiptavinur getur þá samþykkt kaupinn rafrænt, með SMS eða undirrritað samning.
Einnig er í boði að nota Express feril sem einfölduð útgáfa af því að skrá sölu.
- Byrjið á að fara inn á sölugáttina og veljið Sala > Söluyfirlit sem er efst á síðunni hægra megin á síðunni.
- Hægt er að smella á örina sem er vinstra megin við færsluna til að sjá nánari upplýsingar.
- Vinstra megin við færslu birtast tvö tákn. Skiptilykill er notaður til að lækka upphæð færslu ef vara er ekki til eða viðskiptavinur skilar vöru. Vinsamlega athugið að ekki er hægt að hækka höfuðstól á færslu eftir á aðeins lækka. X-ið er notað til að fella færslu alveg niður. Þegar færsla er felld niður þarf að skrifa inn ástæðu niðurfellingar til að staðfesta.
Athugið að ekki er hægt að breyta færslu eða fella hana niður ef hún hefur þegar verið greidd út, eða ef viðskiptavinur hefur breytt færslunni með því að dreifa henni eða bæta við greiðslufresti.