Skilmálar

Með samþykki viðskiptavinar á skilmálum þessum stofnast fjarsölusamningur um fjármálaþjónustu á milli Greiðslumiðlunar ehf., kt. 540612-1020, Katrínartúni 4, 105 Reykjavík (hér eftir “Greiðslumiðlun”) og viðskiptavinar í skilningi laga nr. 33/2005 um fjarsölu á fjármálaþjónustu (hér eftir “lög um fjarsölu á fjármálaþjónustu”). Með því að stofna aðgang og nota greiðslulausn Greiðslumiðlunar (Pei) samþykkir viðskiptavinur skilmála þessa. Eftir því sem við á eiga skilmálar þessir einnig við um lánveitingar skv. lögum um neytendalán nr. 33/2013.

1. Umsókn

Þeir einstaklingar sem hafa náð 18 ára aldri, eru fjárráða og rétthafar að símanúmeri ásamt virku netfangi geta óskað eftir því að nota Pei sem greiðsluleið. Símanúmer og netfang sem gefið er upp í tengslum við umsókn er jafnframt notað í samskiptum milli aðila. Greiðslumiðlun áskilur sér rétt til að hafna umsókn þrátt fyrir að framangreind skilyrði séu uppfyllt. Viðskiptavinur getur afturkallað umsókn sína í samræmi við skilmála þessa og skal uppsögnin vera skrifleg.

2. Úttektarheimild

Greiðslumiðlun notar matskerfi þar sem viðskiptavinir eru metnir út frá ákveðnum breytum til að meta umsóknir og ákvarða úttektarheimild. Á grundvelli samþykkis viðskiptavinar aflar Greiðslumiðlun nauðsynlegra gagna til að meta láns- og greiðsluhæfi. Matið byggir á upplýsingum um lánshæfi og vanskil sem sóttar eru í gagnagrunn Creditinfo lánstrausts hf. (hér eftir “Creditinfo”).. Greiðslumiðlun er ekki skylt að upplýsa viðskiptavini um uppbyggingu eða forsendur matsins né hvers vegna viðskiptavini eða einstökum viðskiptum er hafnað. Greiðslumiðlun áskilur sér jafnframt rétt til breytingar á veittri úttektarheimild án fyrirvara.

3. Framkvæmd viðskipta

Þegar viðskiptavinur hyggst greiða fyrir vöru eða þjónustu með Pei ber viðskiptavini að gefa upp kennitölu, símanúmer og netfang hjá söluaðila. Viðskiptavinur getur í framhaldinu óskað eftir því að fresta eða dreifa greiðslu. Eftir framkvæmd viðskipta stofnast krafa í netbanka sem viðskiptavini ber að greiða innan eindaga.

4. Kostnaður og vextir

Viðskiptavini ber að greiða kostnað skv. skilmálum þessum og verðskrá Greiðslumiðlunar. Er þar átt við vexti, kostnað sem fellur til vegna stofnunar kröfu, vegna greiðsludreifingar og önnur gjöld, s.s. þau sem kunna að falla til á síðari stigum. Verðskrá Greiðslumiðlunar er birt á heimasíðu Pei, www.pei.is.

5. Eindagi og vanskil

Viðskiptavini ber að greiða úttektir sínar í síðasta lagi á eindaga hverrar kröfu. Berist greiðsla ekki á þeim degi reiknast dráttarvextir í samræmi við ákvörðun Seðlabanka Íslands, skv. 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 (hér eftir “lög um vexti og verðtryggingu”), af vanskilum, frá gjalddaga til greiðsludags. Á meðan krafa hefur ekki verið greidd geta vanskil haft þau áhrif að lokað verði á frekari úttektir viðskiptavinar ásamt þeirri þjónustu sem greiða átti fyrir með greiðslulausninni.

Greiðslumiðlun sendir út innheimtuviðvörun eftir eindaga hafi viðskiptavinur ekki greitt kröfuna. Að jafnaði er krafan send til frekari innheimtu tíu dögum síðar. Viðskiptavini ber að greiða þann kostnað sem af innheimtu kröfunnar hlýst.

Verði verulegar vanefndir af hálfur viðskiptavinar á einhverri skuldbindingu sinni er Greiðslumiðlun heimilt að gjaldfella allar útistandandi kröfur viðskiptavinar fyrirvaralaust og án uppsagnar.

Samkvæmt skilmálum þessum teljast verulegar vanefndir viðskiptavinar Greiðslumiðlunar m.a. vera þegar eitt af eftirfarandi atriðum hafa átt sér stað:

  • Þegar reikningar viðskiptavinar eru komnir yfir eindaga án þess að samið hafið verið sérstaklega um greiðslutilhögun.
  • Þegar gert er fjárnám í eignum eða réttindum viðskiptavinar, lögð er fram beiðni um nauðungarsölu á eignum hans, hann óskar eftir greiðslustöðvun, leitar nauðasamninga, krafist er gjaldþrotaskipta yfir búi hans eða ljóst er að mati Greiðslumiðlunar að viðskiptavinur geti ekki staðið við skuldbindingar sínar.
  • Viðskiptavinur hefur gefið Greiðslumiðlun rangar upplýsingar eða vanrækt það að uppfæra þær upplýsingar sem liggja skulu fyrir við upphaf samningssambands.
  • Viðskiptavinur tekur upp fasta búsetu utan Íslands.
  • Viðskiptavinur uppfyllir ekki lengur skilyrði skilmála þessara fyrir gerð samnings, t.d. ef netfang eða símanúmer verður óvirkt án þess að breytingar hafi verið tilkynntar Greiðslumiðlun.

Viðskiptavini er ljóst og samþykkir með staðfestingu skilmála þessara að allar tilkynningar um innheimtu vegna vanskila viðskiptavinar fari fram með stafrænum hætti, þ.e. að póstur þess efnis berist viðskiptavini á skráð netfang og/eða með SMS skeyti í skráð símanúmer. Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að samskiptaupplýsingar séu rétt skráðar á kaupendavef Greiðslumiðlunar.

Vakin er athygli á því að vanskil viðskiptavina kunna að leiða til skráningar á vanskilaskrá Creditinfo í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 606/2023 um vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust. Nánari upplýsingar um vanskilaskrá Creditinfo og áhrif skráningar á vanskilaskrá er að finna á vef félagsins, www.creditinfo.is

6. Upplýsingar um viðskiptavini

Greiðslumiðlun vinnur persónuupplýsingar um viðskiptavini að því marki sem nauðsynlegt er til að veita þjónustu samkvæmt samningi milli aðila. Við öflun og meðferð persónuupplýsingar er gætt fyllsta öryggis og farið eftir ákvæðum laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Frekari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga er að finna í persónuverndarstefnu Pei sem aðgengileg er á vef félagsins, www.pei.is.

Greiðslumiðlun hefur heimild til þess að hljóðrita símtöl við viðskiptavini á grundvelli 91. gr. laga nr. 70/2022 um fjarskipti. Öll símtöl eru hljóðrituð og er þess sérstaklega getið í upphafi hvers símtals. Tilgangur með símaupptökum er að varðveita heimildir um samskipti milli aðila í ákveðinn tíma.

Með samþykki á skilmálum þessum veitir viðskiptavinur Greiðslumiðlun heimild til að afla gagna úr gagnagrunni Creditinfo hf. Í því felst að afla og vakta upplýsingar um lánshæfismat viðskiptavinar og óska eftir upplýsingum um það hvort viðskiptavinur sé skráður á vanskilaskrá eða öðrum upplýsingum sem kunna að hafa þýðingu fyrir ákvarðanatöku í viðskiptum aðila. Viðskiptavinur samþykkir að slíkar upplýsingar séu notaðar við ákvarðanatöku í tengslum við viðskipti, eftirlit í tengslum við viðskipti og í öðrum þeim tilvikum þegar Greiðslumiðlun hefur lögvarða hagsmuni af notkun umræddra upplýsinga.

Vinnsla lánshæfismats Creditinfo byggir á persónusniði og felur í sér sjálfvirka vinnslu persónuupplýsinga. Upplýsingar um lánshæfismatið, áhrifaþætti og vægi þeirra í matinu er að finna á vef Creditinfo.

Viðskiptavinur getur afturkallað samþykki sitt skv. þessari grein og skal slík afturköllun taka gildi 30 dögum eftir að Greiðslumiðlun hefur sannanlega móttekið slíka afturköllun. Þá fellur samþykki þetta úr gildi þegar viðskiptum aðila lýkur. Fram til þess tíma hefur Greiðslumiðlun heimild til að sækja og nota þær upplýsingar sem samþykki þetta tekur til að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma í skilmálum þessum. Afturkalli viðskiptavinur samþykki sitt leiðir það til gjaldfellingar allra útistandandi skulda viðskiptavinar.

7. Endurgreiðsla

Samkvæmt samningi aðila skuldbindur viðskiptavinur sig til að endurgreiða úttektir eða önnur lán sem veitt eru af Greiðslumiðlun. Endurgreiðsla lánsins skala fara fram með greiðslu kröfu í netbanka viðskiptavinar eða samkvæmt samkomulagi. Endurgreiðsla lána hjá Greiðslumiðlun er einungis heimil með rafrænum hætti og er því óheimilt að endurgreiða lán með reiðufé.

8. Kvartanir

Greiðslumiðlun ber hvorki ábyrgð á né tekur að sér milligöngu vegna hvers konar ágreinings sem kann að verða á milli söluaðila og viðskiptavinar vegna vöru eða þjónustu sem greitt hefur verið fyrir með greiðslulausnum Greiðslumiðlunar. Verði viðskiptavinur fyrir tjóni eða vara reynist gölluð ber viðskiptavini að leita beint til söluaðila.

9. Upplýsingar og tilkynningar

Viðskiptavinur skuldbindur sig til að hlíta þeim skilmálum sem gilda um þjónustu Greiðslumiðlunar á hverjum tíma. Viðskiptavini ber að tilkynna Greiðslumiðlun þegar í stað verði breytingar á skráðum upplýsingum, s.s. heimilisfangi, símanúmeri eða netfangi, með því að uppfæra skráningu á kaupendavef, sem er aðgengilegur á www.pei.is. Vanræksla viðskiptavinar á tilkynningu getur leitt til gjaldfellingar á öllum útistandandi kröfum. Tilkynningar Greiðslumiðlunar til viðskiptavinar eru sendar með SMS-skeyti, tölvupósti eða bréfi á það heimilisfang, símanúmer eða netfang sem hann hefur skráð á kaupendavef. Viðskiptavinur staðfestir að honum sé ljóst að notkun tölvupósts og annarra rafrænna samskiptaleiða tryggi ekki leynd eða öryggi samskipta. Greiðslumiðlun ber ekki ábyrgð á tjóni sem viðskiptavinur kann að verða fyrir vegna þess að framangreindar samskiptaleiðir voru notaðar. Hafi viðskiptavinur vanrækt þá skyldu sína að uppfæra upplýsingar á kaupendavefnum ber Greiðslumiðlun ekki ábyrgð á því að tilkynningar berist ekki viðskiptavini.

10. Breytingar á skilmálum

Greiðslumiðlun áskilur sér rétt til að gera breytingar á skilmálum þessum og þeirri þjónustu sem veitt er á grundvelli samnings aðila, s.s. vegna breytinga á lagaumhverfi. Séu breytingar á skilmálum íþyngjandi eru þær kynntar viðskiptavini með tilkynningu í tölvupósti á netfang það sem hann hefur gefið upp með a.m.k. 15 daga fyrirvara áður en breytingarnar taka gildi. Haldi viðskiptavinur áfram að nota þjónustu Greiðslumiðlunar eftir að breyttir skilmálar hafa tekið gildi telst hann hafa samþykkt þá. Sætti viðskiptavinur sig ekki við breytta skilmála getur hann sagt upp samningi aðila.

11. Uppsögn samnings

Um samning viðskiptavinar og Greiðslumiðlunar gilda lög um fjarsölu á fjármálaþjónustu. Samkvæmt ákvæðum laganna hefur viðskiptavinur rétt til að falla frá samningi án greiðslu viðurlaga og án þess að tilgreina nokkra ástæðu, ef viðskiptavinur sendir tilkynningu þar að lútandi til Greiðslumiðlunar innan 14 daga frá þeim degi sem viðskiptavinur hefur móttekið þessa skilmála.

Frestur til að falla frá samningi byrjar að líða þegar viðskiptavinur hefur samþykkt skilmálana. Ef síðasti dagur frestsins fellur á helgi eða er frídagur, lýkur frestinum næsta virka dag. Falli viðskiptavinur frá samningi eftir að umsókn hans berst Greiðslumiðlun, en áður en umsókn er afgreidd, hefur Greiðslumiðlun heimild til að krefja viðskiptavin um greiðslu fyrir þá þjónustu sem þegar hefur verið innt af hendi, sbr. 14. gr. laga um fjarsölu á fjármálaþjónustu. Ef viðskiptavinur óskar eftir því að falla frá samningi ber honum að greiða þá fjárhæð sem hann hefur fengið frá Greiðslumiðlun þegar í stað. Réttur til að falla frá samningi gildir ekki um þá samninga sem hafa verið efndir að fullu af báðum aðilum að ósk viðskiptavinar.

Óski viðskiptavinur eftir því að segja upp samningssambandi við Greiðslumiðlun af öðrum ástæðum skal tilkynningu þess efnis beint til Greiðslumiðlunar með sannanlegum hætti. Eftir uppsögn getur viðskiptavinur ekki óskað eftir frekari þjónustu.

12. Ýmis ákvæði

Viðskiptavinum er óheimilt að framselja réttindi sín eða skyldur samkvæmt skilmálum þessum eða samningum nema með fengnu skriflegu samþykki Greiðslumiðlunar.

Greiðslumiðlun er heimilt að framselja réttindi sín og skyldur samkvæmt skilmálum þessum eða samningum aðila í heild eða að hluta til þriðja aðila án samþykkis viðskiptavinar.

Skilmálar þessir eru með fyrirvara um ákvarðanir stjórnvalda, styrjaldir, kjarnorkuslys eða önnur atriði sem talin verða falla undir „force majeure“ tilvik þannig að aðilum verði ómögulegt að efna skilmála þessa og samning aðila. Í þeim tilvikum getur Greiðslumiðlun að undangenginni tilkynningu til viðskiptavinar gjaldfellt reikning með 10 daga fyrirvara. Þá eru aðilar einnig sammála um að ákveði yfirvöld, t.d. skattayfirvöld, að leggja á skatta, gjöld eða álög á viðskipti sem skilmálar þessir taka til, skuldbindur viðskiptavinur sig til að greiða slíkt beint til viðkomandi yfirvalda að skaðlausu fyrir Greiðslumiðlun.

Greiðslumiðlun ber ekki ábyrgð á tjóni, beinu eða óbeinu, sem kann að orsakast af tæknilegum bilunum eða villum í hugbúnaði, stýrikerfum, netkerfum, fjarskiptakerfum, rofi eða truflunum í slíkum kerfum, rafmagnsleysi, bilunum og truflunum í tækjum og vélbúnaði hvort sem slíkur búnaður er í eigu eða notaður af Greiðslumiðlun eða notaður af hálfu annarra. Viðskiptavinur getur ekki krafið Greiðslumiðlun um bætur vegna tjóns, beins eða óbeins, vegna sambandsleysis, rofa á fjarskiptum eða annarra truflana sem kunna að verða á rekstri fjarskiptanetsins hvort sem slíkt má rekja til línubilana, bilana í stöðvum eða annarra ástæðna.

Rísi ágreiningur um túlkun skilmála þessa sem ekki tekst að ljúka með samkomulagi má reka mál þar um fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Skilmálar þessir gilda frá 13. október 2025.

Greiðslumiðlun ehf.

 

Þessi vefsíða
notar vafrakökur

Stillingar fyrir vafrakökur

Samþykkja notkun