→14
Fresta
0% vextir í 14 daga
30/60
Fresta
0% vextir í 30 eða 60 daga
→48
Dreifa
Allt að 48 mánuðir
Hjá okkur getur þú fengið allt að 3 milljóna króna heimild og dreift greiðslum í allt að 5 ár.
Sjáðu hvernig þínar greiðslur gætu litið út.
Með Pei getur þú boðið viðskiptavinum þínum þægilega leið til að borga eins og þeim hentar best
Yfir 1.700 söluaðilar bjóða upp á Pei.
Með Pei getur þú keypt núna og borgað seinna. Þegar þú gengur frá kaupum færðu alltaf 14 daga greiðslufrest sem svo er hægt að lengja í 30 eða 60 daga eða dreifa greiðslunum í allt að 48 mánuði. Lágmarksupphæð dreifingar er 30.000 kr.
Í Pei appinu geturðu skoðað heimildina þína og fundið lista yfir alla 1.500 söluaðilana sem taka við Pei sem greiðslu. Þú finnur Pei appið í App Store eða Google Store og notar rafræn skilríki til að innskráningar.
Í vefverslun
Þú einfaldlega velur Pei í greiðsluferlinu og færð sjálfkrafa 14 daga greiðslufrest.
Í verslun
Vertu með Pei appið og þú getur greitt með því á svipaðan hátt og með greiðslukorti í síma. Veldu Pei sem greiðsluleið í posa eða við kassann og fáðu sjálfkrafa 14 daga greiðslufrest.
Hvort sem þú verslaðir á vefnum eða í verslun þá getur þú innan 14 daga frestsins farið í Pei appið eða á Mínar síður, og sótt um 30 eða 60 daga frest eða dreift greiðslunum í allt að 48 mánuði. Greiðsluseðill berst í heimabanka 10 dögum fyrir eindaga.
Þegar keypt er fyrir lægri upphæðir en 20.000 kr. í vefverslunum þarf ekkert að gera annað en að velja Pei sem greiðslumáta þegar þú ert að borga. Þá færðu sjálfkrafa 14 daga greiðslufrest og greiðsluseðill berst í heimabanka u.þ.b. fjórum dögum eftir kaup, 10 dögum fyrir eindaga. Viljir þú fresta eða dreifa greiðslum sækir þú appið eða skráir þig inn á þjónustuvefinn.
Fyrir hærri upphæðir þarftu einungis að sækja appið og skrá þig sem notanda.
Þú sækir Pei appið í App Store eða Google Store.
Þessi vefsíða
notar vafrakökur